Nicolas Sarkozy
| Nicolas Sarkozy | |
|---|---|
Sarkozy árið 2010. | |
| Forseti Frakklands | |
| Í embætti 16. maí 2007 – 15. maí 2012 | |
| Forsætisráðherra | François Fillon |
| Forveri | Jacques Chirac |
| Eftirmaður | François Hollande |
| Persónulegar upplýsingar | |
| Fæddur | 28. janúar 1955 París, Frakklandi |
| Stjórnmálaflokkur | Lýðveldisflokkurinn (2015–) Samband um þjóðarhreyfingu (2002–2015) Lýðveldisfylkingin (1976–2002) |
| Maki | Marie-Dominique Culioli (1982–1996), Cécilia Ciganer-Albéniz (1996–2007), Carla Bruni (2008 – Í dag) |
| Börn | 4 |
| Háskóli | Paris Nanterre-háskóli Institut d'études politiques de Paris |
| Undirskrift | |
Nicolas Paul Stéphane Sárközy de Nagy-Bócsa (f. 28. janúar 1955), yfirleitt kallaður Nicolas Sarkozy, er franskur stjórnmálamaður og var forseti Frakklands frá 16. maí 2007 (þegar Jacques Chirac lét af embætti), til 15. maí 2012.
Árið 2004 varð Nicolas Sarkozy formaður franska íhaldsflokksins Union pour un Mouvement Populaire, skammstafað UMP, og var forsetaefni flokksins í forsetakosningunum 2007 á móti fulltrúa Sósíalistaflokksins, Ségolène Royal.
Nicolas Sarkozky var borgarstjóri í Neuilly-sur-Seine frá 1983 til 2002. Árið 1983 fór hann á þing og hefur síðan þá gengt ýmsum embættum, svo sem: fjármálaráðherra og talsmaður þingsins (1993-1995), samgöngumálaráðherra 1994-1995 og auk þess að vera innanríkisráðherra á árunum 2002-2004 og 2005-2007.
Sarkozy tapaði endurkjöri fyrir François Hollande, frambjóðanda Sósíalistaflokksins, í forsetakosningunum árið 2012.[1] Sarkozy hugði á forsetaframboð árið 2017 en tapaði í forkosningum UMP og lenti í þriðja sæti á eftir tveimur fyrrverandi forsætisráðherrum, Alain Juppé og François Fillon árið 2016.[2]
Árið 2018 var Sarkozy handtekinn og yfirheyrður vegna ásakana um að hann hafi tekið við ólöglegu fjármagni frá einræðisherranum Muammar Gaddafi í kosningabaráttu sinni árið 2007.[3] Réttarhöld Sarkozy hófust árið 2019.[4] Í mars árið 2021 var Sarkozy dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar, þar af tveggja ára í skilorðsbundinni fangavist.[5][6]
Sarkozy var dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir að þiggja ólöglegar greiðslur frá Gaddafi í skiptum fyrir að fegra ímynd hans á Vesturlöndum þann 25. september 2025.[7]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Frakkar kjósa breytingar“. Morgunblaðið. 7. maí 2012. Sótt 20. mars 2018.
- ↑ „Fillon sigrar Sarkozy“. Viðskiptablaðið. 21. nóvember 2016. Sótt 20. mars 2018.
- ↑ Samúel Karl Ólason (20. mars 2018). „Sarkozy handtekinn fyrir að taka við peningum frá Gaddafi“. Vísir. Sótt 22. mars 2018.
- ↑ Guðbjörg Ríkey Th. Hauksdóttir (19. júní 2019). „Sarkozy ákærður fyrir spillingu og mútuþægni“. Kjarninn. Sótt 20. júní 2019.
- ↑ „Sarkozy hlaut 3 ára dóm í spillingarmáli“. mbl.is. 1. mars 2021. Sótt 1. mars 2021.
- ↑ Ásgeir Tómasson (1. mars 2021). „Sarkozy fékk dóm fyrir spillingu“. RÚV. Sótt 1. mars 2021.
- ↑ Samúel Karl Ólason (25. september 2025). „Fimm ára fangelsi fyrir að taka við fúlgum fjár frá Gaddafi“. Vísir. Sótt 29. september 2025.
| Fyrirrennari Jacques Chirac |
Forseti Frakklands 2007 — 2012 |
Eftirmaður François Hollande |