Fara í innihald

Lissabon

Lissabon
Lisboa (portúgalska)
Svipmyndir
Svipmyndir
Fáni Lissabon
Skjaldarmerki Lissabon


Lissabon er staðsett í Portúgal
Lissabon
Lissabon
Staðsetning í Portúgal
Hnit: 38°42′28.951″N 9°8′20.458″V / 38.70804194°N 9.13901611°V / 38.70804194; -9.13901611
Land Portúgal
Stjórnarfar
  BorgarstjóriCarlos Moedas
Flatarmál
  Samtals100,05 km2
Mannfjöldi
 (2024)[1]
  Samtals575.739
TímabeltiUTC+00:00 (WET)
  SumartímiUTC+01:00 (WEST)
Póstnúmer
1149-014 Lisboa
Svæðisnúmer(+351) 21 XXX XXXX
Vefsíðawww.lisboa.pt
Miðborg Lissabon
Séð til Tagus fljóts.

Lissabon (portúgalska: Lisboa) er höfuðborg og stærsta borg Portúgals. Íbúar eru um 576.000 en á stórborgarsvæðinu búa rúmlega 3 milljónir (2024).[1] Borgin er staðsett í vesturhluta Portúgals, við Atlantshafið og þar sem áin Tagus (Tejo) rennur í haf. Hún er vestasta höfuðborg á meginlandi Evrópu. Borgarmörk Lissabon eru þröngt skilgreind utan um sögufræga hluta borgarinnar. Allmargar borgir eru í kringum Lissabon, t.d. Loures, Odivelas, Amadora og Oeiras og eru þær á stórborgarsvæði Lissabon.

Lissabon er ein elsta borg Evrópu og nær sögufrægi hluti borgarinnar yfir sjö mjög brattar hæðir. Borgin var miðstöð landkönnuða sem sigldu til Asíu og Ameríku á 15. til 17. öld, Vasco da Gama var þekktastur. Árið 1755 varð stór jarðskjálfti í borginni sem eyðilagði hana að stórum hluta og létust tugþúsundir.

Vesturhluti borgarinnar samanstendur af einum stærsta náttúrugarði í þéttbýli í Evrópu, Monsanto-garðinum, sem er nálægt 10 ferkílómetrar að flatarmáli.

Orðsifjar „Lissabon“ eru nokkru myrkri sveipaðar en algengasta ágiskunin er að hún hafi í öndverðunni merk borg Úlissíusar þar sem Úlissíus er talin hafa stofnsett borgina og -ippo merkti borg á fönikísku og því hafa þróast Uliss-ippo > Ulisipona. Nafnið gæti einnig hafa komið frá keltneskum ættbálkum.

Merkir staðir

[breyta | breyta frumkóða]

Íþróttir

[breyta | breyta frumkóða]

Knattspyrna

[breyta | breyta frumkóða]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. 1 2 „Resident population (No.) by Place of residence (NUTS - 2024), Sex and Age group; Annual“. INE. 18 júní 2025.
  Þessi landafræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.