Johnny Depp

John Christopher Depp II, þekktastur sem Johnny Depp, (fæddur 9. júní 1963) er bandarískur leikari.
Depp fæddist í Owensboro, Kentucky en var alinn upp í Flórída. Hann hætti í skóla í von um að ná frama sem rokkstjarna þegar hann var fimmtán ára. Hann var í mörgum bílskúrsböndum þar á meðal The Kids.
Hann byrjaði fyrst að leika eftir heimsókn til L.A með þáverandi konu sinni, Lorian Alison sem kynnti hann fyrir leikaranum Nicolas Cage. Frumraun hans í kvikmyndageiranum var A Nightmare on Elm Street árið 1984. Hann skaust upp á stjörnuhimininn þegar hann tók við af „Jeff Yagher“ í hlutverkinu sem leynilögreglan Tommy Hanson í vinsælu sjónvarpsþáttunum 21 Jump Street.
Þegar hann hitti Tim Burton var hann búinn að leika í nokkrum unglingamyndum en fyrsta myndin sem hann lék í þar sem Tim Burton var leiksstjóri var Edward Scissorhands. Í kjölfar velgengni kvikmyndarinnar fór hann að velja hlutverk sem koma gagnrýnendum og áhorfendum á óvart. Hann hélt áfram að fá góða gagnrýni og auka vinsældir með því að taka aftur þátt í kvikmynd með Tim Burton sem aðalhlutverkið í myndinni Ed Wood það var árið 1994. árið 1997 lék hann leynilögreglumann hjá FBI í myndinni Donnie Brasco sem var byggð á raunverulegum atburðum, hann lék á móti Al Pacino. Árið 1998 lék hann í Fear and Loathing in Las Vegas. Árið 1999 lék hann í vísindaskáldsögu- og hryllingsmyndinni The Astronaut's Wife. Sama ár þá lék hann aftur í mynd sem Tim Burton leiksstýrði myndin hét Sleepy Hollow. Depp hefur leikið margar persónur á ferlinum, þar á meðal sjóræningjann Jack Sparrow í Pirates of the Caribbean myndunum.
Hann hefur verið tilnefndur til 92 verðlauna en unnið 37 af þeim. Þar á meðal hefur hann verið tilnefndur til Óskarsverðlauna þrisvar sinnum.
Tónlist
[breyta | breyta frumkóða]Depp stofnaði hljómsveitina Hollywood Vampires, með söngvaranum Alice Cooper og Joe Perry, gítarleikara Aerosmith. Hann gerði plötu með gítarleikaranum Jeff Beck árið 2022. Hann hefur gestað á plötum með Oasis, Marilyn Manson, Aerosmith og Shane MacGowan meðal annarra. [1]
Einkalíf
[breyta | breyta frumkóða]Depp á tvö börn með fyrrum eiginkonu sinni, Vanessu Paradis.
Árið 2022 komst í hámæli dómsmál Depps gegn Amber Heard, leikkonu sem hann var giftur um tveggja ára skeið. Heard sakaði Depp um heimilisofbeldi og fór hann í meiðyrðamál við hana vegna ummæla sem hún lét falla um hann. Depp vann málið.[2]
Kvikmyndir
[breyta | breyta frumkóða]| Ár | Kvikmynd | Hlutverk |
|---|---|---|
| 1984 | A Nightmare on Elm Street | Glen Lantz |
| 1985 | Private Resort | Jack Marshall |
| 1986 | Platoon | Specialist Gator Lerner |
| 1990 | Cry-Baby | Wade "Cry-Baby" Walker |
| 1990 | Edward Scissorhands | Edward Scissorhands |
| 1991 | Freddy's Dead: The Final Nightmare | Teen on TV |
| 1993 | What's Eating Gilbert Grape | Gilbert Grape |
| 1993 | Benny & Joon | Sam |
| 1993 | Arizona Dream | Axel Blackmar |
| 1994 | Ed Wood | Edward D. Wood, Jr. |
| 1995 | Nick of Time | Gene Watson |
| 1995 | Dead Man | William Blake |
| 1995 | Don Juan DeMarco | Don Juan/John R. DeMarco |
| 1996 | Cannes Man | Himself |
| 1997 | Donnie Brasco | Donnie Brasco/Joseph D. Pistone |
| 1997 | The Brave | Raphael |
| 1998 | Fear and Loathing in Las Vegas | Raoul Duke |
| 1998 | L.A. Without a Map | Sjálfur/William Blake |
| 1999 | Sleepy Hollow | Ichabod Crane |
| 1999 | The Astronaut's Wife | Spencer Armacost |
| 1999 | Níunda hliðið | Dean Corso |
| 2000 | Chocolat | Roux |
| 2000 | Before Night Falls | Lt. Victor, Bon Bon |
| 2001 | From Hell | Frederick Abberline |
| 2001 | The Man Who Cried | Cesar |
| 2001 | Blow | George Jung |
| 2003 | Once Upon a Time in Mexico | Sheldon Sands |
| 2003 | Sjóræningjar á Karíbahafi: Bölvun svörtu perlunnar | Jack Sparrow |
| 2004 | Happily Ever After | L'inconnu |
| 2004 | Finding Neverland | J. M. Barrie |
| 2004 | Secret Window | Mort Rainey |
| 2005 | The Libertine | John Wilmot, 2nd Earl of Rochester |
| 2005 | Charlie and the Chocolate Factory | Willy Wonka |
| 2005 | Líkbrúðurin | Victor Van Dort |
| 2006 | Pirates of the Caribbean: Dead Man's Chest | Jack Sparrow |
| 2007 | Sjóræningjar á Karíbahafi: Á hjara veraldar | Jack Sparrow |
| 2007 | Sweeney Todd: The Demon Barber of Fleet Street | Sweeney Todd/Benjamin Barker |
| 2009 | Public Enemies | John Dillinger |
| 2009 | The Imaginarium of Doctor Parnassus | Tony |
| 2010 | Lísa í Undralandi | Mad Hatter |
| 2010 | The Tourist | Frank Tupelo/Alexander Pearce |
| 2011 | The Rum Diary | Paul Kemp |
| 2011 | Rango | Rango |
| 2011 | Pirates of the Caribbean: On Stranger Tides | Jack Sparrow |
| 2011 | Jack & Jill | Johnny |
| 2012 | 21 Jump Street | Tom Hanson |
| 2012 | Dark Shadows | Barnabas Collins |
| 2013 | The Lone Ranger | Tonto |
| 2014 | Transcendence | Will |
| 2014 | London Fields | Cameo |
| 2014 | Into the Woods | Wolf |
| 2015 | Mortdecai | Charles Mortdecai |
| 2015 | Black Mass | Whitey Bulger |
| 2015 | Yoga Hosers | Guy LaPointe |
| 2016 | Alice in Wonderland: Through the Looking Glass | Mad Hatter |
| 2016 | Pirates of the Caribbean: Dead Men Tell No Tales | Jack Sparrow |
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Johnny Depp -Biography Allmusic
- ↑ Depp vinnur meiðyrðamálið gegn Amber HeardRúv, sótt 2/6 2022