James Caan
James Caan | |
|---|---|
| Upplýsingar | |
| Fæddur | James Langston Edmund Caan 26. mars 1940 |
| Dáinn | 6. juli 2022 (82 ara) |
| Helstu hlutverk | |
| Sonny Corleone í The Godfather | |
James Langston Edmund Caan (fæddur 26. mars 1940 í Bronx í New York; dáinn 6. júlí 2022) var bandarískur leikari. Hann hlaut tilnefningu til Óskarsverðlauna, Emmy-tilnefningu og Golden Globe-tilnefningu fyrir bestu bandarísku myndina, og sem sviðs- og sjónvarpsleikari.
Leikferill
[breyta | breyta frumkóða]Hann byrjaði á að leika í sjónvarpi í þáttaröðum eins og The Untouchables, The Alfred Hitchcock Hour, Kraf Suspense Theatre, Combat!, Ben Casey, Dr. Kildare, The Wide Country, Alcoa Premiere, Route 66 og Naked City. Fyrsta „alvöru“ hlutverkið var illmennið í Lady In A Cage sem kom út árið 1964. Hann kom fram í El Dorado með John Wayne. Hann lék heilaskemmdan fótboltaleikmann í The Rain People sem kom út árið 1969 og fékk mikið hrós fyrir leik sinn. Árið 1971 lék hann deyjandi fótboltaleikmann í sjónvarpsmyndinni Brain's Song og fékk enn meira hrós fyrir leik sinn í þeirri mynd. Ári seinna lék hann Sonny Corleone í The Godfather, sem hjálpaði líka ferli Al Pacino. Fyrir það hlutverk var hann tilnefndur til Óskarsverðlaunanna.
Frá 1973 til 1982 lék hann í mörgum kvikmyndum. Hann lék fjölbreytt hlutverk, en neitaði að leika þjófa. Cinderella Liberty, Rollerball, Harry And Walter Go To New York, A Bridge Too Far, Comes A Horseman og Chapter Two eru nokkrar af þeim myndum.
Árið 1980 leikstýrði hann Hide In Plain Sight. Þrátt fyrir jákvæða umfjöllun varð myndin ekki vinsæl. Árið 1981 kom hann fram í Thief. Sú mynd er í dag álitin klassísk glæpa- og dramamynd. Hann sagði að það hlutverk væri það hlutverk sem hann væri stoltastur af, ásamt hlutverkinu í The Godfather.
Frá 1982 til 1987 lék hann ekki í neinum myndum. Hann þjáðist af þunglyndi eftir dauða systur sinnar, glímdi við vaxandi vandamál vegna kókaínneyslu og því sem hann lýsti sem „Hollywood-kulnun“. Hann sneri aftur 1987 þegar hann var ráðinn í myndina Gardens of Stone. Árin 1988 og 1990 lék hann í Alien Nation, Dick Tracy og Misery. Árið 1992 lék hann í Honeymoon in Vegas. Árið 1996 kom hann fram í Bottle Rocket og Eraser. Árið 1998 lék hann í This is my Father.
Árið 2003 fór hann í áheyrnaprufur og fékk hlutverk Big Ed Deline í sjónvarpsþáttunum Las Vegas. Fyrsta þáttaröðin fór á toppinn en vinsældirnar minnkuðu með árunum og voru á mörkum þess að hætt yrði að taka þættina upp. En þökk sé ákvörðum NBC var þáttunum haldið áfram fram í 4. þáttaröð.
Einkalíf
[breyta | breyta frumkóða]Hann var giftur fjórum sinnum. Árið 1960 giftist hann Dee Jay Mathis. Þau skildu árið 1966, en áttu eitt barn. Annað hjónabandið með Sheilu Ryan árið 1976 lifði ekki lengi og þau skildu ári seinna. Sonur hans, Scott, fæddist árið 1976. Frá september 1990 til mars 1995 var hann giftur Ingrid Hajek. Þau áttu eitt barn. Í október 1995 giftist hann Lindu Stokes, en þau skildu í apríl árið 2005. Þau eignuðust tvö börn.
Caan hefur verið nefndur í þáttunum Family Guy („He's too sexy for hit fat“) og kom fram í The Simpsons („All's fair in oven war“). Hann var gestaleikari í Newsradio, þætti 308 („Movie Star“). Hann var fastagestur á Turnberry Isle í Flórída og varði miklum tíma með marijúanasmyglurunum Joey Ippolito og Ben Kramer. Árið 1994 bauð hann heimili sitt upp í 2 milljóna lausnargjald og bar vitni fyrir „kæran vin“ sinn Joey Ippolito, sem var ákærður fyrir dreifingu kókaíns.
Eftir hlutverk hans sem Sonny Corleone í The Godfather hefur fólk haldið að hann sé af ítölskum-amerískum ættum en hann er í raun af þýskum gyðingaættum.