Erling Haaland
| Erling Braut Haaland | ||
| Upplýsingar | ||
|---|---|---|
| Fullt nafn | Erling Braut Haaland | |
| Fæðingardagur | 21. júlí 2000 | |
| Fæðingarstaður | Leeds, England | |
| Hæð | 1,94 m | |
| Leikstaða | Framherji | |
| Núverandi lið | ||
| Núverandi lið | Manchester City | |
| Númer | 17 | |
| Yngriflokkaferill | ||
| Bryne FK | ||
| Meistaraflokksferill1 | ||
| Ár | Lið | Leikir (mörk) |
| 2016-2017 | Bryne FK | 16 (0) |
| 2017–2018 | Molde F.K. | 39 (14) |
| 2019-2020 | Red Bull Salzburg | 16 (17) |
| 2020-2022 | Borussia Dortmund | 67 (62) |
| 2022- | Manchester City | 111 (100) |
| Landsliðsferill2 | ||
| 2019- | Noregur | 47 (51) |
|
1 Leikir með meistaraflokkum og mörk | ||
Erling Braut Haaland (fæddur Håland[1], 21. júlí 2000) er norskur knattspyrnumaður sem spilar með Manchester City og norska landsliðinu. Hann hefur skorað um 300 mörk í öllum keppnum.
Faðir hans er Alf-Inge Håland, fyrrum knattspyrnumaður hjá Leeds United, Manchester City og fleiri félögum.
Árið 2016 hóf Haaland að spila í meistaraflokki fyrir Bryne. Síðar fór hann yfir til Molde þar sem Ole Gunnar Solskjær þjálfaði hann. Í leik gegn Brann skoraði hann 4 mörk á 17 mínútum. Hann skaust upp enn frekar á stjörnuhimininn þegar hann fór til Red Bull Salzburg árið 2019 og sama ár varð hann fyrsti táningurinn til að skora í 5 leikjum í röð í Meistaradeild Evrópu.
Borussia Dortmund
[breyta | breyta frumkóða]Þýska stórliðið Borussia Dortmund keypti hann í janúar 2020 og Haaland byrjaði afar vel; skoraði 5 mörk í fyrstu 2 leikjum sínum með félaginu þar sem hann kom inn sem varamaður. Síðar á árinu skoraði hann fernu í leik. Í mars 2021 varð hann fljótastur til að ná 20 mörkum í meistaradeildinni eða í 14 leikjum og mölbraut met Harry Kane sem náði því í 24 leikjum.
Haaland skoraði 2 mörk í 4-1 sigri á RB Leipzig þegar Dortmund vann DFB-Pokal bikarkeppnina 2021. Hann skoraði 41 mark á tímabilinu 2020-2021 í öllum keppnum. Haaland var sá yngsti til að ná 50 mörkum í Bundesliga.
Manchester City
[breyta | breyta frumkóða]2022-2023
[breyta | breyta frumkóða]Í maí 2022 náðu Haaland og City samkomulagi um að hann gerðist leikmaður félagsins í júlí. [2] Haaland skoraði tvennu í byrjunarleik tímabilsins í ágúst 2022-2023 í 2:0 sigri gegn West Ham og þrennu þrjá heimaleiki í röð síðar. Hann byrjaði tímabilið afar vel og setti met yfir mörk skoruð í deildinni fyrir áramót eða 21 talsins.
Í Meistaradeild Evrópu skoraði Haaland 5 mörk á innan við 60 mínútum gegn RB Leipzig. Hann var markahæstur í keppninni.
Haaland sló markametið í ensku úrvalsdeildinni á einu tímabili í apríl þegar hann náði 33 mörkum en Mohamed Salah átti eldra met frá 2017-2018. Alls skoraði hann 36 mörk í 35 leikjum það tímabil og alls 52 mörk í öllum keppnum. City vann þrennu það tímabil, deild, bikar og Meistaradeild Evrópu.
2025-2026
[breyta | breyta frumkóða]Haaland náði 100 mörkum í ensku úrvalsdeildinni í desember 2025 og gerði það í 111 leikjum, 13 færri en fyrri methafi, Alan Shearer. [3]
Norska landsliðið
[breyta | breyta frumkóða]Haaland skoraði 9 mörk með norska U20 landsliðinu gegn Honduras árið 2019. Hann hóf frumraun sína með aðalliðinu í september sama ár. Það tók hann aðeins rúm 5 ár að verða markahæsti landsliðsmaðurinn en hann sló metið í október árið 2024. Metið hafði staðið síðan 1937. [4]
Verðlaun og viðurkenningar
[breyta | breyta frumkóða]Redbull Salzburg
[breyta | breyta frumkóða]- Austurríska Bundesliga, meistari: 2018–19, 2019–20
- Austurríski bikarinn: 2018–19
- Leikmaður tímabilsins í Bundesliga 2019–20
Borussia Dortmund
[breyta | breyta frumkóða]- DFB-Pokal: 2020–21
- Besti framherji 2020-2021 í Meistaradeild Evrópu
- Leikmaður mánaðarins í Bundesliga: Janúar og febrúar 2020, apríl 2021.
- Leikmaður tímabilsins í Bundesliga 2020-2021
Manchester City
[breyta | breyta frumkóða]- Leikmaður mánaðarins: Ágúst 2022, apríl 2023, ágúst 2024, september 2025
- Leikmaður tímabilsins: 2022-2023
- Markakóngur ensku úrvalsdeildarinnar: 2022-2023, 2023-2024
- UEFA leikmaður tímabilsins 2022-2023
- Besti framherjinn, Gullknötturinn 2023
- Enska úrvalsdeildin: 2022-2023, 2023-2024
- Enski bikarinn: 2022-2023
- Meistaradeild Evrópu: 2022-2023
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Hagen, Mathias (19. september 2019). „Derfor byttet han fra Håland til Haaland“. dagbladet.no (norska). Sótt 7 ágúst 2024.
- ↑ Club statement - Erling Haaland Mancity.com, sótt 10/5 2022
- ↑ Haaland beats Shearer record as ManCity win nine-goal thriller BBC, skoðað 2. desember, 2025
- ↑ Erling Haaland becomes Norway leading scorer ESPN.com