Emilio Colombo
| Emilio Colombo | |
|---|---|
| Forsætisráðherra Ítalíu | |
| Í embætti 6. ágúst 1970 – 18. febrúar 1972 | |
| Forseti | Giuseppe Saragat Giovanni Leone |
| Forveri | Mariano Rumor |
| Eftirmaður | Giulio Andreotti |
| Forseti Evrópuþingsins | |
| Í embætti 8. mars 1977 – 17. júlí 1979 | |
| Forveri | Georges Spénale |
| Eftirmaður | Simone Veil |
| Persónulegar upplýsingar | |
| Fæddur | 11. apríl 1920 Potenza, Ítalíu |
| Látinn | 24. júní 2013 (93 ára) Róm, Ítalíu |
| Stjórnmálaflokkur | Kristilegi demókrataflokkurinn |
| Háskóli | Sapienza-háskólinn í Róm |
Emilio Colombo (11. apríl 1920 – 24. júní 2013) var ítalskur stjórnmálamaður, meðlimur í Kristilega demókrataflokknum og forsætisráðherra Ítalíu frá 1970 til 1972. Hann gegndi fjölda annarra ráðherraembætta á Ítalíu á tímabili sem spannaði allt frá 1955 til 1993. Hann var jafnframt forseti Evrópuþingsins frá 1977-79.
Æviferill
[breyta | breyta frumkóða]Colombo lauk lögfræðiprófi frá Háskólanum í Rómarborg árið 1941. Í kjölfarið skráði hann sig í herinn og barðist í seinni heimsstyrjöldinni þar til Ítalir drógu sig út úr stríðinu. Á þessum árum varð Colombo einarður and-fasisti. Hann gekk til liðs við Kristilega demókrata og varð yngsti þingmaðurinn á ítalska þinginu eftir kosningarnar árið 1946. Þar með hófst jafn og þéttur tröppugangur hans á sviði stjórnmálanna.
Hann átti mikilvægan þátt í stórfelldum landbúnaðarumbótum á Ítalíu sem samþykktar voru af þinginu árið 1950 og voru styrktar af Marshalláætluninni. Umbætur þessar voru taldar einhverjar þær mikilvægustu í þróun ítalsks þjóðfélags og drógu úr ægivaldi stórra landeigenda.
Colombo varð forsætisráðherra í ágúst 1970. Í stjórnartíð hans var áfram unnið að umbótum í landbúnaði. Þá má nefna ýmis konar löggjöf sem miðaði að því að styrkja stöðu kvenna á vinnumarkaði, m.a. með fæðingarorlofi. Forsætisráðherratíð Colombo stóð aðeins í eitt og hálft ár, en eftir að henni lauk hélt hann áfram þátttöku í stjórnmálum og gegndi ýmsum ráðherraembættum. Árið 2003 var hann settur öldungardeildarþingmaður til lífstíðar, sem eru æðstu metorð ítalskra stjórnmálamanna. Hann tók virkan þátt í störfum öldungadeildarinnar til dauðadags árið 2013.
| Fyrirrennari: Mariano Rumor |
|
Eftirmaður: Giulio Andreotti | |||

