2026
Útlit
| Árþúsund: | 3. árþúsundið |
|---|---|
| Aldir: | |
| Áratugir: | |
| Ár: |
Árið 2026 (MMXXVI í rómverskum tölum) er í gregoríanska tímatalinu almennt ár sem byrjar á fimmtudegi.
Atburðir
[breyta | breyta frumkóða]Janúar
[breyta | breyta frumkóða]- 1. janúar:
- 3. janúar:
- Árásir Bandaríkjanna á Venesúela 2026: Bandaríkjaher gerði loftárásir á Venesúela. Tugir létust í árásunum og var Nicolás Maduro, forseti landsins, handsamaður. Delcy Rodríguez var skipuð forseti landsins.
- Eygló Fanndal Sturludóttir, kraftlyftingarkona var valin íþróttamaður ársins.
- Miðbaugs-Gínea flutti höfuðborg sína frá Malabó til Ciudad de la Paz.
- 7. janúar - Bandaríkin tóku yfir stjórn á olíuflutningaskipið Marinera sem sigldi undir rússneskum fána 200 km suðaustan við Ísland.
- 8. janúar - Guðmundur Ingi Kristinsson sagði af sér embætti menntamálaráðherra vegna veikinda.
- Mótmæli í Íran gegn stjórnvöldum stigmögnuðust. Þúsundir létust.
- 14. janúar - Utanríkisráðherra Danmerkur og Grænlands funduðu með Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna og JD Vance, varaforseta Bandaríkjanna um málefni Grænlands.
- 15. janúar - 1. febrúar: Evrópukeppnin í handbolta fór fram í Skandinavíu. Þýskaland og Danmörk mættust í úrslitum og vann Danska karlalandsliðið í handknattleik mótið.
- 16. janúar - Yoweri Museveni var endurkjörinn forseti Úganda. Ásakanir voru um kosningasvindl.
- 18. janúar:
- Átta Evrópuþjóðir gáfu út yfirlýsingu gagnvart hótunum Donald Trump um að innlima Grænland, að þær græfu undan samskiptum Evrópu og Bandaríkjanna.
- 46 létust og hátt í 300 slösuðust þegar tvær háhraðalestir skullu saman nálægt Córdoba á suður-Spáni.
- Senegalska karlalandsliðið í knattspyrnu vann Afríkukeppni landsliða í knattspyrnu karla.
- 19. janúar - Helmingur íbúa Kýiv varð rafmagnslaus eftir árásir Rússlandshers.
- 19. janúar - 23. janúar: Heimsviðskiptaráðstefnan í Davos fór fram.
- 20. janúar - Stjórnarher Sýrlands náði yfirráðum yfir megninu af svæði sem Lýðræðissveitir Sýrlands höfðu á valdi sínu í norðurhluta landsins.
- 22. janúar:
- Bandaríkin sögðu sig formlega úr Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni.
- Laugarnestangi í Reykjavík var friðlýstur.
- 23. janúar - Iliana Iotova varð fyrsti kvenforseti Búlgaríu eftir afsögn Rumen Radev.
- 24. janúar - Maður var skotinn til bana í Minneapolis af útsendurum ICE-innflytjendaeftirlitsins, rúmum tveimur vikum eftir að kona var skotin til bana af þeim. Mikil mótmæli voru gegn ICE í borginni. Ríkisstjóri Minnesota, Tim Walz ásamt borgarstjóra Minneapolis, Jacob Frey, kröfðust enn á ný að ICE-liðar yfirgæfu borgina og fylkið.
- 27. janúar - Evrópusambandið og Indland gerðu fríverslunarsamning.
- 28. janúar - Yfir 200 létust þegar náma féll saman í miklum rigningum í Lýðveldinu Kongó.
- 30. janúar - Epstein-skjölin voru birt. Þau innihéldu nær 3.5 milljón skjöl, myndir og myndbönd sem viðkomu kynferðisglæpamanninum Jeffrey Epstein og hans innsta hring.
Febrúar
[breyta | breyta frumkóða]- 1. febrúar - Laura Fernández Delgado var kosin forseti Kosta Ríka.
- 6. febrúar - 22. febrúar: Vetrarólympíuleikarnir 2026 fóru fram í Mílanó og Cortina d'Ampezzo á Ítalíu.
- 8. febrúar:
- Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn undir forystu Sanae Takaichi vann sigur í þingkosningum í Japan.
- António José Seguro var kjörinn forseti Portúgals.
- 11. febrúar - 18 ára byssumaður drap 6 í framhaldsskóla í Tumbler Ridge í Bresku Kólumbíu í Kandada ásamt því að drepa móður sína, stjúpbróður og loks sjálfan sig.
- 15. febrúar - Lilja Alfreðsdóttir var kjörin formaður Framsóknarflokksins.
- 19. febrúar - Yoon Suk-yeol, fyrrum forseti Suður-Kóreu, var dæmdur í ævilangt fangelsi.
- 20. febrúar - Hæstiréttur Bandaríkjanna felldi úr gildi tolla sem Donald Trump, forseti, hafði sett á lönd heimsins fyrr á forsetatíð sinni.
- 22. febrúar - Yfir 60 létust í lögregluaðgerðum í Jalisco, Mexíkó. Þar á meðal var fíkniefnabaróninn Nemesio Oseguera El Mencho Cervantes.
- 23. febrúar - Rob Jetten tók við embætti forsætisráðherra Hollands.
- 26. febrúar - Pakistan gerði loftárásir á Afganistan og lýsti stríði á hendur stjórn Talibana.
- 28. febrúar - Ísrael og Bandaríkin gerðu loftárásir á Íran. Nokkrir leiðtogar landsins létust í árásunum: Ali Khamenei, æðstiklerkur, leiðtogi byltingavarðarins, varnarmálaráðherann og fleiri. Íran svaraði með loftárásum á bandarískar herstöðvar í nágrannaríkjum þess.
Mars
[breyta | breyta frumkóða]Apríl
[breyta | breyta frumkóða]Maí
[breyta | breyta frumkóða]- 12. maí - 16. maí: Eurovision verður haldið í Austurríki.
- 16. maí: Sveitarstjórnarkosningar verða haldnar.
- Sameining sveitarfélaga: Skorradalshreppur sameinast Borgarbyggð.
Júní
[breyta | breyta frumkóða]- Heimsmeistaramót landsliða í knattspyrnu karla 2026 verður haldið í Mexíkó, Bandaríkjunum og Kanada í júní og júlí.
Júlí
[breyta | breyta frumkóða]Ágúst
[breyta | breyta frumkóða]September
[breyta | breyta frumkóða]- 13. september - Þingkosningar verða í Svíþjóð.
Október
[breyta | breyta frumkóða]- 4. október - Þingkosningar verða í Brasilíu.
Nóvember
[breyta | breyta frumkóða]- 3. nóvember - Kosningar verða haldnar í Bandaríkjunum.
Desember
[breyta | breyta frumkóða]Ódagsett
[breyta | breyta frumkóða]- Fyrirhugað er að ljúka aðalbyggingu kirkjunnar La Sagrada Familia í Barselóna.
- Brasilíska þungarokkssveitin Sepultura spilar á sínum síðustu tónleikum.
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 3. janúar - Guðmundur Oddur Magnússon, Goddur, listamaður og prófessor í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands. (f. 1955)
- 9. janúar - Magnús Eiríksson, tónlistarmaður (f. 1945).
- 10. janúar - Sturla Böðvarsson, alþingismaður og ráðherra (f. 1945).
- 13. janúar - Baltasar Samper, katalónsk-íslenskur listmálari (f. 1938).
- 21. janúar - Kristinn Svavarsson, saxófónleikari (Mezzoforte) og kennari (f. 1947).
- 22. janúar - Floyd Vivino, bandarískur leikari og sviðslistamaður (f. 1951)
- 25. janúar - Jón Þ. Ólafsson, frjálsíþróttamaður (f. 1941).
- 30. janúar - Catherine O´Hara, kanadísk-bandarísk leikkona (f. 1954)
- 11. febrúar - James Van Der Beek, bandarískur leikari (f. 1977)
- 15. febrúar - Robert Duvall, bandarískur leikari (f. 1931).
- 17. febrúar - Jesse Jackson, bandarískur mannréttindafrömuður (f. 1941)
- 18. febrúar:
- Haraldur Sigurðsson, leikari (f. 1942)
- Jan Timman, hollenskur stórmeistari í skák. (f. 1951).
- 20. febrúar - Frank Booker, bandarískur körfuboltamaður (f. 1964)
- 28. febrúar:
- Ali Khamenei, æðstiklerkur Írans (f. 1939).
- Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans (f. 1956).
- 1. mars - Davíð Oddsson, forsætisráðherra, borgarstjóri, seðlabankastjóri og ritstjóri Morgunblaðsins (f. 1948) .